Afhendingar- og sendingamáti

Viðskiptavinur sem kemur í verslun og kaupir vöru fær vöruna afhenta þar. Vara sem keypt er í vefverslun Viðmóts Sports getur kaupandi annaðhvort valið að sækja í verslun Viðmóts Sports, Smiðshöfða 1, 110 Reykjavík eða valið að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað. 

Sóttar pantanir:
Viðmót Sport tekur sér 1-2 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun. Viðskiptavinur, sem pantað hefur í gegnum vefverslun Viðmóts Sports en velur að sækja pöntun í verslun, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, þegar hann sækir pöntunina.

Sendar pantanir:
Viðmót Sport nýtir sér þjónustu Dropp til að senda vörur á skilgreindan afhendingarstað. Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað tekur Viðmót Sport sér 1-2 virka daga að koma vöru til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Gjaldskrá Dropp má nálgast hér: https://www.dropp.is/verdskra

Dropp er dreifingaraðili Viðmót Sports og sér um sendingu á keyptum vörum til viðskiptavina. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp. Eingöngu er hægt að fá vörur Viðmót Sports sendar innan Íslands. Viðmót Sport áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.